Laukinn er mjög gott að bera fram með steiktum fisk.
Þú þarft:
1-2 laukar
1-2 msk matarolía
| Hreinsið laukinn og skerið hann í fremur þunnar sneiðar. |
| Hellið olíunni á pönnu og hitið. |
| Dreifið lauknum um heita feitina. |
| Hrærið í lauknum á meðan hann er að brúnast. |
![]() |
| Látið laukinn yfir fiskinn um leið og hann er borinn fram. |
| Verði þér að góðu. |

Mér fannst tilvalið að hafa brúnaða laukinn á sér síðu, það er frekar auðvelt að brúna lauk. Hér áður var það oftar gert í smjörlíki eða smjöri. En samkvæmt ráðleggingum Lýðheilsustöðvar er betra að steikja hann upp úr olíu.
ReplyDelete